Varir
Varanleg förðun/örlitameðferð er ákjósanleg leið til að móta og lita varir þínar. Meðferðin gerir varir þínar þrýstnari og formfegurri. Varalitablýantur verður óþarfur eftir þessa frábæru meðferð og varir þínar eru alltaf eins – fallegar..
Þrenns konar meðferð er í boði, þ.e. útlínur, útlínur og skuggi eða alger varalitun, til að skýra, leiðrétta eða afmarka varir. Þú getur valið úr fjölbreyttu og glæsilegu litaúrvali. Einungis litlaust gloss þarf til áhersluauka eða þú getur breytt til og notað þá liti sem þú kýst hverju sinni.
Andlitsfarði sem endist er framsækin tækni sem byggir á örlitameðferð, sem er aðferð til að lita húðina. Örlitameðferðin undirstrikar þína eigin fegurð alla daga, skerpir og skýrir, án þess að hefðbundnar snyrtivörur komi þar nærri. Meðferðin hentar öllum og ekki síst þeim sem hafa ofnæmi fyrir snyrtivörum, eiga erfitt með að setja á sig andlitsfarða, stunda íþróttir o.s.frv.
Þessi meðferð er örugg og áhrifarík og eykur skerpu vara þinna.