Augabrúnir
Augabrúnirnar, litaðar með örlitarefni, er meðferðin fyrir alla sem vilja skerpa augabrúnir sínar og blýanturinn verður óþarfur. Nýjasta tæknin í þessari meðferð er svokölluð „feathering way”. Hún er svarið fyrir þá sem eru með gisnar eða öróttar augabrúnir. Hentar einnig þeim sem vilja breyta ásýnd og lögun brúnanna. Aðferðin felst í því að líkja eftir einstökum hárum svo þær verði sem eðlilegastar.
| Fyrir | Eftir |
Andlitsfarði sem endist er framsækin tækni sem byggir á örlitameðferð, sem er aðferð til að lita húðina. Örlitameðferðin undirstrikar þína eigin fegurð alla daga, skerpir og skýrir, án þess að hefðbundnar snyrtivörur komi þar nærri. Meðferðin hentar öllum og ekki síst þeim sem hafa ofnæmi fyrir snyrtivörum, eiga erfitt með að setja á sig andlitsfarða, stunda íþróttir o.s.frv.
Þessi meðferð er örugg og áhrifarík og eykur skerpu augabrúna þinna.