Örlitameðferð
Bruni - Hylja ör og slit
Precision Plus M-tækið, sem notað er í örlitameðferð, má einnig nota með svokallaðri þurri nál og tækni sem nefnd er „MCA". Tæknin felst í því að erta efsta húðlagið. Við það örvast starfsemi húðarinnar, eykur litarefni hennar og collagen og kallar fram eðlilegan litarhátt á því svæði sem orðið hefur fyrir áverkum. „MCA"-tæknin er áhrifarík meðferð sem endist í langan tíma.
Þegar brunnið skinn hefur gróið, eða eftir skinnágræðslu, er hægt að nota örlitameðferðina til að hylja eða aðlaga svæðið að húðlitnum.
Vel gróið ör má gera samlitt húðinni með örlitameðferðinni eða „MCA" tækninni. Oft verður erting húðarinnar með „MCA" tækninni til að mýkja örið.
Alopecia
Alopecia er sjúkdómur sem lýsir sér í því að fólk missir hár af öllum líkamanum. Hármissir er mest áberandi í kring um augun. Með því að nota tækni sem gerir kleift að líkja eftir einstökum hárum má móta augabrúnir svo þær verði sem eðlilegastar. Þá er og hægt að gera línur við augun og líkja eftir augnhárum. Örlitameðferð er eina langtíma lausnin fyrir sjúklinga sem þjást af alopecia.
Vitiligo
Vitiligo er sjúkdómur sem lýsir sér í því að litafrumur vantar á stórum eða litlum svæðum. Örlitameðferð hefur reynst vel í tilfellum vitiligo með því að fylla í svæðin þar sem litafrumur vantar.
Skarð í vör
Eftir enduruppbyggingu holgóms getur örlitameðferð breytt ásýndinni, með því að móta og lita varir og lita ör.