Brjóst

Endurgerð og bætt ásýnd vörtubaugs/areola og geirvörtu

Brjóstaaðgerðir eða uppbygging brjósta geta orðið til þess að sumar konur missa vörtubaugs-svæðið/areola og geirvörtu. Ný tækni í örlitameðferð gerir mögulegt að búa til nýja ásýnd geirvörtu, vörtubaugs eða fylla upp í og jafna vörtubaug sem fyrir er og þannig skapað eðlilega ásýnd brjóstsins.

Brjóst fyrir meðferð Brjóst eftir meðferð
Fyrir Eftir

Þessi meðferð er fyrir marga lokapunkturinn í oft langri og erfiðri vegferð.


Örlitun hefur reynst ákaflega vel í læknisfræðilegum tilgangi. Læknar, hjúkrunarfólk, geislafræðingar og aðrir sérfræðingar hafa viðurkennt gildi örlitameðferðar við að búa til nýja ásýnd geirvörtu, vörtubaugs eða fylla upp í og jafna svæði sem fyrir er.

Precision Plus M-tækið sem notað er við meðferðina er eina tækið á þessu sviði sem framleitt er og vottað skv. Evrópulögum, byggðum á viðmiðunarreglum nr 93/42 fyrir lækningatæki og framleitt er skv. EN-ISO 9000:2001 og DIN EN ISO 13485:2003 stöðlum.

 
Undína Sigmundsdóttir
Meistari í snyrtifræði og
sérfræðingur í "medical tattoo"
og varanlegri förðun
Örlitun í læknisfræðilegum tilgangi