Fyrirtækið
Þessi heimur í varanlegri förðun eða tattoo hefur alltaf verið henni hugleikinn og er það fyrir löngu síðan að hún horfði til þess tíma að geta sótt sér meiri þekkingu á þessu sviði eins og t.d "Medical Tattoo".
Undanfarin ár hefur verið horft til og fylgst náið með þeim miklu framförum og öllum þeim nýjungum sem í boði eru á sviði Permanent make-up/Tattoo og hefur þá sérstaklega verið horft til þess þáttar sem tengist svonefndu "Medical Tattoo" öll þau helstu og fremstu fyrirtæki sem starfa á þessu sviði, en samkeppnin er þar mikil, fyrir valinu varð Breskt fyrirtæki sem heitir Finishing Touches, það fyrirtæki er eina fyrirtækið á markaðnum sem býður uppá hina fullkomnu "Precision Plus M" Tattoo vél sem hefur fengið vottun frá Bresku læknasamtökunum og er viðurkennd af Evrópskum "medical" staðli (The Precision Plus is licensed as a medical product according to European Law on the base of guideline 93/42 for medicinal products and is produced under the EN-ISO 9000:2001 and DIN EN ISO 13485:2003). Mjög mikið af sérfræðingum sem lært hafa hjá fyrirtækinu Finishing Touches starfa náið með heilbrigðisstarfssfólki bæði á einka "clinic" sem og á sjúkrahúsum í Bretlandi í dag með aðkomu að málum þar sem við á með "Medical Tattoo" tækninni, leiðbeinendur þessa fyrirtækis eru færustu sérfræðingar á sínu sviði og starfa í nánum tengslum við "medical" markaðinn.
Hefur þessi þáttur varanlegrar förðunar "Medical Tattoo" heillað sérstaklega sökum þess hve hægt er að gera mikið í dag með þessari tækni til að auðvelda þeim sem verða fyrir þess háttar áföllum að ná fyrri ásýnd að eins miklu leyti og mögulegt er, meðal annars að bjóða þeim konum sem greinst hafa með brjóstakrabbamein uppá "Medical Tattoo" það er að segja að lita vörtubaug og geirvörtu með þessari tækni þannig að ásjónan geti orðið eins eðlileg og frekast er unnt í tilviki hvers einstaklings.
Samhliða þessu er einnig hægt að bjóða þeim einstaklingum sem þess þurfa varanlega förðun á augabrúnum ef til kemur meðferð sem orsakar missir af hári af því svæði.
Það skal tekið fram að ávallt er haft að leiðarljósi, fagleg vinnubrögð, gott skipulag, snyrtimennska og alúð í hverju því verkefni sem unnið er hjá Ný-Ásýnd.